Ég ákvað að gera bloggsíðu til þess að halda
utan um ferðina til Danmerkur og til þess að þeir sem vilja gætu fylgst með.
Við Lalli byrjuðum á því að fara til Berlínar
með vinnunni hans. Þar skoðuðum við okkur um og versluðum eitthvað aðeins. Á
laugardeginum var síðan árshátíð Héðins sem var rosalega fín. Rosalega gaman að
sjá hvað Lalli vinnur með skemmtilegu fólki.
Sunnudagur
Sunnudagur
Daginn eftir fór ég upp á lestarstöðina um kl
8 til að fara til Sønderborg. Ég þurfti að skipta nokkrum sinnum um lest en
ferðin var svona : Berlín – Hamburg – Flensburg – Tinglev – Sønderborg. (Sjá mynd fyrir neðan)
Ég var
svo komin um 15:30 í skólann og þar tók herbergisfélaginn minn (Lise) á móti
mér. Síðan var farið með mig í sýnisferð um skólann og nánast allir krakkarnir
í skólanum komu og heilsuðu mér og kynntu sig. En ég var svo ringluð á þessu öllu saman að ég mundi ekki
helminginn af nöfnunum.
Síðan kom í ljós að við vorum að fara í tæpa
viku í svokallaða óvissusurvivorferð. Við máttum taka einn lítinn bakpoka með
og síðan áttum við að skila inn símunum okkar, vegabréfum og svoleiðis sem við
fengjum svo aftur að ferðinni lokinni. Um kvöldið var svo hittingur hjá öllum
,,famelíunum”. En í skólanum eru 6 gangar þar sem búa 18 manneskjur á hverjum
gangi. Þessar 18 manneskur eru síðan eins og fjölskylda (þeir sem þú ert mest
með og kynnist best)
Gangurinn sem ég bý í heitir Første kort og hittingurinn hjá minni ,,fjölskyldu”
þetta kvöldið var til þess að ég myndi læra nöfnin og kynnast öllum. Þetta var
rosalega hyggeligt eins og danirnir segja. Það gistu svo allir á dýnum á
gólfinu í einum salnum.
Mánudagur
Mánudagur
Það var síðan vakið okkur eldsnemma á
mánudagsmorgninum með því að kalla í kallkerfið að heimurinn væri að farast og
eitthvað fleira á dönsku. Síðan kom sjúkrabíll með sírenurnar á fullu og út
stukku nokkrar hvítklæddar manneskjur með gasgrímur. Þær hlupu síðan inn með
byssur og sögðu okkur að flýta okkur að klæða okkur og svo var skipt okkur
niður í stofur. Síðan vorum við kölluð út eitt og eitt í einu. Þá var bundið
fyrir augun á okkur og leitt okkur inn í nokkrar stofur og gerð eitthver próf á
okkur. Sem dæmi blóðþrýstings, blóðprufu o.s.frv. Síðan var sett okkur 7 og 7
saman inn í stóran svartan sendiferðarbíl og keyrt með okkur eitthvert.
Auðvitað var þetta allt saman gert með einhverri svakalegri tónlist við.
Skyndilega stoppaði bíllinn og það heyrðust
eitthver skothljóð. Þá var látið okkur hafa bakpokana okkar og okkur sagt að
hlaupa áfram eitthvern veg. Þegar við vorum búin að hlaupa í nokkurn tíma þá
kom maður klæddur í hermannabúning og lét okkur fá kort. Síðan sagði hann að ef
við sæjum eitthvern klæddan eins og hann þá ættum við að kalla Kurbís og ef
hann svaraði þá væri hann í sama liði og ef ekki þá ættum við að hlaupa.
Síðan gekk dagurinn þannig að við fengum kort
og löbbuðum þanngað til að það endaði og þá fengum við nýtt kort og löbbuðum
áfram. Síðan var alltaf eitthverjar hópeflingaræfingar á milli staða, s.s.
látta sig falla afturábak af borði og láta hópinn grípa sig. Um kvöldið komum
við svo að stóru, gömlu múrsteinshúsi , þar sem við áttum að gista um nóttina.
Húsið var ekki með neina hurð heldur var það opið í gegn og svo voru nokkur
lítil herbergi sem voru svona gamlir ofnar. Í hverjum ,,ofni” áttu 2 hópar að gista. Þegar við vorum búin
að koma okkur fyrir þá horfðum við á myndband sem útskýrði ferðina og afhverju
við værum þarna.
Síðan vorum við látin fara inn í skóg við
hliðana á húsinu og laumast til að sækja mat sem var þar. Síðan elduðum við
hópurinn það saman á prímus. Síðan
kom í ljós að við höfðum labbað samtals 25 km þann dag.
Þriðjudagur
Þriðjudagur
Á þriðjudeginum tókum við svo saman dótið
okkar og löbbuðum áfram. Við vorum 7 saman í hóp og alla þessa viku var þessi
hópur saman og leysti saman ýmis verkefni. Í mínum hóp voru Toby, Joey, Andres,
Ninna, Line, Nivi og ég. Þennan dag héldum við áfram að labba og leysa
verkefni. Við löbbuðum í gegnum skóga, í gegnum akra, bæi og á ströndinni.
Síðan komum við að stað við ánna sem er í gegnum Sønderborg og þá áttum við að
smíða Tømmefløte (fleka) úr staurum og tómum olíutunnum og reipi. Síðan áttu 4
úr hópnum að sigla flekanum yfir ánna (sem var slatta langt) og hinir 3 á kanó
með allt dótið. Ég fór á flekanum og sem betur fer datt engin af okkur út í enn
einn flekinn hjá öðrum hóp datt í sundur og síðan datt eitthver út í hjá öðrum
hóp.
Síðan komum við að öðrum stað þar sem við
áttum að borða lifandi engisprettur (í söguþráðnum átti það að vera
mótefni). Þetta fannst mér ekkert
gríðarlega geðslegt þannig að strákarnir smurðu rúbrauð með kæfu fyrir mig og
tróðu henni einverstaðar þar á milli. Síðan héldum við áfram að labba og
stoppuðum af og til til þess að leysa nokkur verkefni. Loks komum við inn í
skóg þar sem trén voru risastór en þar áttum við að gera skýli fyrir nóttina
með reipi og segldúk. Þegar við vorum búin að því þá áttum við að útbúa kvölmat
fyrir okkur. Það var búið að setja helling af lifandi fiskum í kar og við áttum
að veiða þá uppúr, drepa þá og flaka. Þetta var svolítið erfitt því þeir voru
eosalega sleipir og sprikluði mikið. Síðan settum við þá álpappír og grilluðum
þá.
Miðvikudagur & Fimmtudagur
Miðvikudagur & Fimmtudagur
Á miðvikudeginum var ég upp í skóla því að
hnéð á mér bólgnaði upp eftir alla gönguna. Á fimmtudeginum var Bike and run
kapplaup. Þá var hópurinn með nokkur hjól og skiptist á því að hlaupa og hjóla.
Síðan voru nokkrir staðir inn í skóginum þar sem við áttum að leysa verkefni.
Sem dæmi skjóta af boga, labba á reipi upp í trjánum yfir á og allskonar. Síðan
komum við að stað þar sem við vorum klædd í öryggisbúnað og áttum að klifra
lengst upp í tré , labba á milli þeirra á reipi og stökkva niður. Svo borðuðum
við kvöldmat og höfðum það hyggeligt. Seinna um kvöldið var síðan keyrt einn og
einn hóp í einu burt rétt hjá
einum skógi. Klukkan var c.a. 22 um kvöldið þannig það var komið niðamyrkur.
Við áttum að labba í gegnum skóginn og að
skólanum en eina ljósið sem var í skóginum voru glowstick sem var búið að
dreifa um skóginn. Við áttum svo að fylgja glowstickinu í gegnum skóginn. Síðan
voru nokkrir aðrir inn í skóginum til að stökkva fram og hræða okkur þannig
þetta var rosalega spennandi. Við vorum síðan komin á ströndina fyrir utan
skólann um 1 leytið um nóttina. Svo var farið með okkur að skólanum og við
áttum að laumast inn framhá eitthverjum vörðum. Einn hljóp t.d. á eftir okkur
með keðjusög sem var svakalegt. Síðan laumuðumst við eitt og eitt inn í skólann og ég var látin fara í gegnum
einhver göng inn í skólann.
Síðan var búið að setja upp svakalegt show í
skólanum og svo komum við loks að einum sal sem allir hóparnir hittust saman í.
Það var búið að leggja um dýnur útum allt og þá var bara haft það kósí og horft
á mynd á meðan hinir hóparnir kláruðu. Þegar allir voru búnir þá fóru allir
hóparnir saman út á strandblaksvöllinn og svo löbbuðu allir team builderarnir
út. Team builderarnir eru gamlir nemendur sem sáu alveg um þessa survivor vikuna
og léku hermennina. Svo þegar það
er venjulegur skóli þá búa 4 á hverjum gangi og sjá um að allt gangi upp. Síðan
héldu team builderarnir smá ræðu og létu hvern hóp hafa svona sky latern (mynd
fyrir neðan) þetta eru svona eins og litlir loftbelgir sem maður kveikjir á og
sleppir í loftið.
Svo slepptu allir hóparnir sínum saman. Þetta var rosalega
flott að sjá og síðan var farið inn og allir hóparnir settust niður og spjölluðu,
fengu sér smá nammi og ávexti og höfðu það hyggeligt langt fram á nótt.